COVID-19 KÓRÓNAVEIRA UPPLÝSINGAR

COVID-19 KÓRÓNAVEIRA UPPLÝSINGAR
Fordæmalausir tímar vegna Covid-19

Ágæti viðskiptavinur

Það eru fordæmalausir tímar og við erum öll að leggja okkur fram við að veita framúrskarandi þjónustu. Heilsufar og velferð viðskiptavina og starfsmanna er okkur hjartans mál um leið og við leggjum áherslu á að þjónusta viðskiptavini okkar á framúrskarandi hátt á öllum sviðum svo samgöngutæki heimilisins og vinnustaðarins sé í topplagi.

Þú getur verið fullviss um að við hjá Vélalandi gerum mjög háar kröfur um þrif og höfum aukið þrif til mikilla muna. Í ljósi núverandi ástands með COVID-19, höldum við áfram að vinna með öllu okkar starfsfólki og viðskiptavinum og minnum á nauðsyn og tíðni góðs handþvotts. Öll umferð vina og ættingja starfsmanna Vélalands hefur verið bönnuð á starfsstöðvum Vélalands í ljósi aðstæðna. Fundir eru á stafrænu formi og ferðalög úr landi bönnuð og við hvetjum til notkunar á snertilausum greiðslum.

Viðskiptavinir og starfsfólk hefur aðgang að einnota hönskum og spritti. Við höfum stöðvað eða takmarkað mjög samgang starfsmanna milli deilda, sent fjölmarga starfsmenn heim í fjarvinnu, tryggt að aldrei séu fleiri en 20 einstaklingar, viðskiptavinir eða starfsmenn í sama rými og að alltaf séu 2 metrar á milli einstaklinga.

Rafrænar lausnir Vélalands

Afgreiðslutími okkar er óbreyttur og starfsfólk Vélalands er til þjónustu reiðubúið og nú sem aldrei fyrr reynir á rafrænar lausnir. Við leggjum okkur fram við að svara öllum fyrirspurnum um hæl. 

Verkstæðisþjónusta

Vélaland hefur farið í viðamiklar aðgerðir til að tryggja að við getum veitt viðskiptavinum okkar áframhaldandi framúrskarandi verkstæðisþjónustu.  Við bjóðum upp á margvíslegar rafrænar lausnir við pantanir á þjónustu, fylgjum reglum í hvívetna um 20 manna hámarksfjölda í hverju rými og að 2 metrar séu ávallt á milli einstaklinga. Háar kröfur um hreinlæti er fylgt í einu og öllu við verkstæðisþjónustu. Við komu ökutækis á verkstæði setja tæknimenn á sig nýja hanska og að þjónustu lokinni eru allir helstu snertifletir ásamt lyklum bíla sem koma á verkstæði Vélalands sótthreinsaðir.

Bókaðu tíma á netinu og skilaðu lyklunum í lúguna. Einfalt og þægilegt. 

Bókaðu tíma á netinu hjá Vélalandi og skilaðu lyklinum í lúguna, jafnvel kvöldið áður. Þú getur svo greitt með símgreiðslu eða millifærslu og sótt bílinn eftir lokun ef það hentar þér. Einfalt og þægilegt. Bókaðu núna>> Verkstæði Vélalands


Svæði

Hvar er Vélaland bílaverkstæði?

Vélaland bifreiðaverkstæði eru í eða nálægt eftirtöldum sveitarfélögum:

Allt um Vélaland

Aðalsímanúmer: 515 7170

Persónuvernd

Bókaðu tíma hér

Kt.: 701277-0239 VSK.NR.: 11650

Skráning á póstlista

Skráðu þig á póstlista Vélalands og fáðu forskot á fréttir og tilboð.

Skráðu þig hér

 

EINFALDAR GREIÐSLUR MEÐ PEIPei
Hægt er að greiða með Pei hjá Vélalandi. Meira hér.

Bílaverkstæðið Vélaland býður allar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla hvort sem um er að ræða; - Bílaviðgerðir fyrir Toyota - Bílaviðgerðir fyrir Volkswagen - Bílaviðgerðir fyrir VW - Bílaviðgerðir fyrir Chevrolet - Bílaviðgerðir fyrir Daihatsu - Bílaviðgerðir fyrir Kia - Bílaviðgerðir fyrir Skoda - Bílaviðgerðir fyrir Ford - Bílaviðgerðir fyrir Honda - Bílaviðgerðir fyrir Renault - Bílaviðgerðir fyrir Hyundai - Bílaviðgerðir fyrir Mercedes Benz - Bílaviðgerðir fyrir Mazda - Bílaviðgerðir fyrir Nissan - Bílaviðgerðir fyrir Suzuki - Bílaviðgerðir fyrir Subaru - Bílaviðgerðir fyrir Audi - Bílaviðgerðir fyrir Citroen - Bílaviðgerðir fyrir Bmw - Bílaviðgerðir fyrir Volvo - Bílaviðgerðir fyrir Peugeot - Bílaviðgerðir fyrir Dacia - Bílaviðgerðir fyrir Opel - Bílaviðgerðir fyrir Mitsubishi - Bílaviðgerðir fyrir Lexus - Bílaviðgerðir fyrir Isuzu - Bílaviðgerðir fyrir Porsche - Bílaviðgerðir fyrir Fiat - Bílaviðgerðir fyrir Jeep - Bílaviðgerðir fyrir Dodge - Bílaviðgerðir fyrir Land Rover - Bílaviðgerðir fyrir Chrysler