Batterí í bíllykla
Batterí í bíllykla fást á verkstæðum Vélalands á höfuðborgarsvæðinu. Ef fjarstýringar fyrir bíla og fjarstýrðar samlæsingar virka ekki er skýringin oftast ónýt rafhlaða. Komdu með fjarstýringuna fyrir bílinn og við athugum hvort batteríið sé ónýtt. Ef sú reynist raunin smellum við nýjum rafhlöðum í bíllykilinn, hratt og örugglega, því við útvegum rafhlöður fyrir fjarstýringar í alla bíla.
BÓKAÐU TÍMA |
|