Hjólabúnaður bíla
Hjólabúnaður bíla er mikilvægur upp á öryggi í umferðinni. Vélaland bílaverkstæði sérhæfir sig í viðgerðum á hjólabúnaði bíla en þar má m.a. nefna hjólalegur, stýrisendar, spindilkúlur, spyrnur og spyrnufóðringar, hjólastilling, höggdeyfar og gormar og hjólastillingu svo fátt eitt sé nefnt.
| AFBÓKA |
Ábyrgð og ánægðir viðskiptavinir
Ánægðir viðskiptavinir eru okkur hjartans mál og því leggjum við okkur fram um að veita bestu mögulega þjónustu. Fari eitthvað úrskeiðis hjá okkur þá veitir Vélaland bílaverkstæði lögbundna ábyrgð skv. þjónustukaupalögum á þjónustu sinni og tryggir ávallt rekjanleika við öll verkefni. Ef þú vilt hrósa okkur fyrir vel unnið verk, koma með ábendingu eða ert ósátt(ur) við bílaviðgerð hjá Vélalandi þá tryggjum við auðveldan og hraðan farveg með því að senda okkur skilaboð í gegnum Góa snjallasvara eða tölvupóst.
| SENDA TÖLVUPÓST Á JAFNASEL 6 |
| SENDA TÖLVUPÓST Á DALSHRAUN 5 |


