Stýrisendar
Stýrisendar slitna og hafa áhrif á stýrisgang og öryggi bílsins. Fagmenn Vélalands bílaverkstæðis eru með áralanga reynslu og snöggir að skipta um stýrisenda og gefa fast verð í stýrisendaskipti. Komi í ljós að gera þurfi við meira en bara stýrisenda þá er ávallt haft samband við viðskiptavin með kostnaðaráætlun áður en hafist er handa við viðbótarverk.
Ekki er óalgengt að nauðsynlegt sé að skipta um stýrisenda þegar bíllinn hefur farið í gegnum aðalskoðun. Starfsmenn Vélalands geta klárað endurskoðun vegna aðalskoðunar bílsins þegar stýrisendaskiptum er lokið og þá þarf bíleigandinn ekki að stússast sjálfur í að láta endurskoða.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
SENDA FYRIRSPURN Á JAFNASEL 6 |
SENDA FYRIRSPURN Á DALSHRAUN 5 |
Ábyrgð á stýrisendum og stýrisendaskiptum
Vélaland veitir lögbundna ábyrgð á stýrisendum og vinnu við stýrisendaskipti og er allt verklag samviskusamlega skráð svo hægt sé að rekja það síðar meir. Ef þú vilt hrósa okkur fyrir vel unnið verk, koma með ábendingu eða ert ósátt(ur) við bílaviðgerð hjá Vélalandi þá tryggjum við auðveldan og hraðan farveg með því að smella á hrós/ábending/kvörtun.