Bílavarahlutir
Vélaland útvegar bílavarahluti á góðu verði í allar bílaviðgerðir á verkstæðum sínum og tryggir bestu möguleg gæði og ábyrgð bílavarahluta.
Panta varahluti
Vélaland útvegar varahluti á einstöku verði fyrir allar bíltegundir annað hvort af lager eða með pöntun sem getur verið með safnsendingu eða hraðsendingu. Við höfum verið í áralöngu sambandi við febi, öflugan þýskan varahlutabirgja, sem útvegar varahluti í allar tegundir bíla hvort sem eru fólksbílar, sendibílar, vörubílar, rútur eða vagna (trailers). febi gæðaprófar alla sína varahluti áður en þeir fara í sölu.
Allar fyrirspurnir og pantanir eru eingöngu rafrænar. Spurðu Góa snjallsvara hér á vefnum um varahluti sem þig vantar í þinn bíl. Láttu hann vita hvaða varahluti þú þarft, í hvaða bíltegund, bílgerð og bílnúmer ásamt nafni, síma og hvort þú vilt sækja þá til okkar eða fá sent og hvernig þú vilt greiða ásamt kennitölu. Við finnum þá varahlutina, verð og áætlaðan komu tíma og svörum um hæl.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
SENDA FYRIRSPURN Á JAFNASEL 6 |
SENDA FYRIRSPURN Á DALSHRAUN 5 |
Ábyrgð á bílavarahlutum
Vélaland veitir lögbundna ábyrgð á bílavarahlutum sem verkstæðið útvegar sjálft til verksins og tryggir ávallt rekjanleika allra verkefna. Ef bíleigandi kemur með varahluti sjálfur ber hann ábyrgðina á gæðum varahlutanna. Ef þú vilt hrósa okkur fyrir vel unnið verk, koma með ábendingu eða ert ósátt(ur) við bílaviðgerð hjá Vélalandi þá tryggjum við auðveldan og hraðan farveg með því að smella á hrós/ábending/kvörtun.