Þjónustuskoðun
Þjónustuskoðun Vélalands fylgir gátlista framleiðanda viðkomandi bíls og tryggir að bíllinn er ávallt í topp lagi og bregðist ekki þegar síst skyldi. Gjald fyrir þjónustuskoðun er fast og fer eftir bíltegund og bílgerð. Komi í ljós að gera þurfi við meira en upphaflega var áætlað þá er ávallt haft samband við viðskiptavin með kostnaðaráætlun áður en hafist er handa við viðbótarverk.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
Vélaland þjónustuaðili fyrir Brimborg
Brimborg styrkir þjónustunetið á höfuðborgarsvæðinu.
Vélaland bílaverkstæði er nú orðið formlegur þjónustuaðili fyrir fimm bílategundir Brimborgar, Ford, Volvo, Mazda, Citroën, Peugeot, Opel og Polestar. Aðgengi er orðið betra, allur tækjabúnaður hefur verið uppfærður og starfsmenn fengið viðeigandi þjálfun. Nú getur þú komið með bílinn í þjónustu nálægt þér.
Vélaland Jafnaseli 6 í Breiðholti mun sjá um þjónustuskoðanir fyrir Mazda, Citroën, Peugeot og Opel.
Vélaland Dalshrauni 5 í Hafnafirði mun sjá um þjónustuskoðanir fyrir Ford, Volvo, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
SENDA FYRIRSPURN Á JAFNASEL 6 |
SENDA FYRIRSPURN Á DALSHRAUN 5 |
Ábyrgð á þjónustuskoðun
Vélaland veitir lögbundna ábyrgð á þjónustuskoðun og tryggir ávallt rekjanleika við öll verkefni. Ef þú vilt hrósa okkur fyrir vel unnið verk, koma með ábendingu eða ert ósátt(ur) við bílaviðgerð hjá Vélalandi þá tryggjum við auðveldan og hraðan farveg með því að smella á hrós/ábending/kvörtun.