Vélaviðgerðir
Vélaland sérhæfir síg í vélaviðgerðum bíla t.d. í upptekningu á vélum og gerir verðtilboð í stærri viðgerðir á bílvélum.
Vélaverkstæði
Vélaverkstæði Vélalands getur skipt alfarið um vélar, gert við smærri vélarbilanir eða séð um allsherjar vélarupptekningu. Rennsli sveifarása, borun blokka, stangar- og höfuðlegur, rennsla ventla og ventlasæta og spíssaskipti eru nokkur af þeim mörgum verkefnum sem við tökum að okkur.
Fast verð og tilboð í vélaviðgerðir
Vélaland gerir verð tilboð í stærri vélaviðgerðarverkefni. Vélaland vinnur með fast-tímaaðferð og því veit viðskiptavinurinn ávallt hvað verkið mun kosta áður en vinna hefst. Komi í ljós að upphaflegt verkefni er viðameira en ráð var fyrir gert er ávallt haft samband við bíleigandann með kostnaðaráætlun vegna viðbótarvinnu.
Öflug tæki og fagmenn
Vélaland bílaverkstæði er einstaklega vel búið tækjum til vélaviðgerða og státar af öflugum fagmönnum á sviði vélaviðgerða með áralanga reynslu og sem fá reglulega þjálfun í viðgerðum á nýjustu bíltækni.
Ráðgjöf
Starfsmenn Vélalands búa yfir yfirgripsmikilli þekkingu við vélaviðgerðir og veita viðskiptavinum ráðgjöf.
Ábyrgð vélaviðgerða og bílavarahluta
Ábyrgð á vinnu og varahlutum er okkur ofarlega í huga og því fylgjum við ákvæðum laga um þjónustukaup í hvívetna og þáttur í því er að tryggja rekjanlega allra verkefna. Ef þú vilt hrósa okkur fyrir vel unnið verk, koma með ábendingu eða er ósáttur við bílaviðgerð hjá Vélalandi þá skaltu smella á hrós/ábending/kvörtun.
BÓKAÐU TÍMA |
AFBÓKA |
SENDA FYRIRSPURN Á JAFNASEL 6 |
SENDA FYRIRSPURN Á DALSHRAUN 5 |